Jólin, Áramótin og Íslandið

Já ég er á lífi! Bara búin að vera mikið löt við blogg undanfarið, var mikið að gera fyrir heimkomu og nóg að gera eftir heimkomu. 

Kláraði önnina og kom heim 13 dec, svona smá óvænt. Ætlaði mér ekki að koma fyrr en 20 dec en ákvað að flýta ferðinni svo ég næði að hitta Ragga aðeins áður en hann fór til Spánar með sinni fjölskyldu yfir jólin.  Kom honum á óvart hér á laugardagsmorgun með að banka sem brjálaðingur á gluggan um 9 leytið um morguninn! Voða gaman! 

Raggi fór svo 17 dec til Spánar með fjöslkyldunni og ég hélt vörð hér um íbúðinna á meðan.  Mamma kom svo heim til Ísland 21 dec og var hér hjá mér fram á gamlárs.  Aðfangadegi var eitt í Vogunum hjá Rósu og family, með mömmu og Arnari bróðir og hans family. Pakkaflóðið var þvílíkt, maturinn æðislegur og allt æðislegt bara. 

IMG_0161 IMG_0141

  

 

 

 

 

 

 

 

Ég og Mamma fórum svo í heimsóknir og matarboð á milli jóla og nýars. Sá stelpurnar hans Arnars í jólaleikriti í Breiðholtskirkju á Jóladag.  

IMG_0184

 

IMG_0181  

 

 

 

 

 

 

 

 

Við kíktum líka aðeins austur fyrir fjall í heimsókn á Hellu og Þykkvabæinn. Alltaf gott að komast heim í sveitina aðeins, þó svo að það hafi nú ekki verið heimilslegt að sjá gamla húsið í ástandinu sem það er núna...

IMG_0202

 

IMG_0207

 

 

 

 

 

 

 

 

Raggi kom svo heim á gamlársmorgun og eftir smá lúr áttum við liltu jól hér heima í stofunni með pakkanna okkar! Voða Kósy. Fékk I-pod frá Ragga! Mjög sátt - búið að langa mikið í I-pod þar sem égá bara gamlan I-pod shuffle sem er orðin lélegur. :)   Um kvöldið borðuðum við í Vogunum alveg magnaða humarsúpu og kartöfluhýði (eins og hefðin er í fjölskyldunnu minni). Það var eiginlega ekkert pláss fyrir plankasteikina eftir þetta... úff... Keyrðum svo í bæin, og horfðum á skaupið hér og flugeldana.  Keyptum enga flugelda heldur löbbuðum bara uppá hæðina hér fyrir ofan og horfðum á hina skjóta upp. Kíktum aðeins í bæin, en aðallega bara til að rölta og fá okkur Hlölla og koma heim aftur! :) 

IMG_0197

    Já svo er það bara át og afslöppun....  og eftirvænting eftir einkunnum sem eru væntarlegar 6 jan... 

     Langar svo að óska ykkur bloggvinum mínum og þeim sem      kíkja hér við Gleðilegs Árs og þakka fyrir innlitið á árinu            sem er liðið! :)   

     Nú er bara að gera árið 2009 að góðu ári, enda ekkert              annað í boði!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg  Erlingsdóttir

Gleðilegt ár elskuleg og takk sömuleiðis fyrir allt ! Fæ vonandi að sjá þig áður en þú ferð af skerinu. Það er ekkert annað í boði en að gera 2009 að frábæru ári........knús og kremj,

Ofurskutlukveðja !

Guðbjörg Erlingsdóttir, 4.1.2009 kl. 10:54

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gledilegt ár mín kæra og takk fyrir bloggvináttu á árinu sem var ad lída.

tad hefur verid yndislegt ad hafa múttu hjá sér um jólin.Svo er hrædilegt ad sjá hvad hefur gerst med húsid ykkar fyrir austan...

Hjartanskvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 4.1.2009 kl. 12:34

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Gleðilegt ár

Guðný Einarsdóttir, 14.1.2009 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband