Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Sætu frænkurnar mínar!

Photo 164 Photo 117

 

Photo 127 Photo 184 Photo 144 Photo 176

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Jersey lögin mín!

Á djamminu í Jersey eru alltaf nokkur lög sem heyrast pottþétt og koma mér alltaf í stuð! Allt gömul og góð 80´s tónlist sem er ekki hægt annað en að dilla sér aðeins og syngja með!! Hér er smá sýnishorn! 

 


ég fékk kvörtun...

alla leið úr Mosfellsbæ um skort á myndum á blogginu!  

  

IMG_1759 100_0199 IMG_0196 IMG_0023 IMG_0552

100_0242
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Vona að þetta sé betra! hahaha 

Everything but the girl...

Ég elska þetta lag!!


Eftir allt þetta Ísbjarnar tal...

er ekki nema von að mér hafi brugðið þegar ég leit út um gluggan og sá þennan

IMG_0065

 

 Hann kíkti svo yfir í garðinn hjá okkur, langaði víst í grillmatinn! 

IMG_0061

 

 

 

 

 

 

 

 


Useless Info:

1. ERTU SKÝRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM? Já, Ömmu Lillu, Mömmu hans Pabba.

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA? man ikki.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL? Nei mér finnst það ekki.

4. HVAÐA KJÖT ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? lambakjöt

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVAÐ MÖRG? ekkert

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT, VÆRIR ÞÚ VINUR ÞINN? já, ég held ég væri það ef við myndum hittast.

7. NOTAR ÞÚ KALDHÆÐNI MIKIÐ? ég? nei aldrei.

8. FÆRIR ÞÚ Í TEYGJUSTÖKK? já, kannski

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? smart start morgunkorn með mjólk.

10. REIMAR ÞÚ FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM? nei, sjaldnast.

11. TELUR ÞÚ ÞIG ANDLEGA STERKA/N? ég get verið það, get líka verið það ekki.

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? cookie dough - ben n´ jerrys.

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS? Framkoma, hár, fasi

14. Rauður eða bleikur varalitur? bara fer eftir outfittinu!

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR VIÐ SJÁLFAN ÞIG? ohh það er fullt, útlit, DNA... hehe

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST? Ömmu Rósu.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA? Alveg bara endilega!

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERU Í NÚNA? engum.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR? honey nut cheerios

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA? Dawsons creek og Alla bróðir tala.

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ? Grænn

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST? ný-slegið gras og sígarettulykt og "útilykt" saman

23. VIÐ HVERN TALAÐIR ÞÚ SÍÐAST VIÐ Í SÍMA? Alla bróðir

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR? Hún er mín bestasta vinkona.

25. UPPÁHALDS ÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á? Handbolti, hef gaman af góðum Hafnarbolta og Fótbolta líka.

26. HVERNIG ER ÞINN HÁRALITUR? ljós skolhærð

27. HVERNIG ER ÞINN AUGNLITUR? Blá

28. NOTAR ÞÚ LINSUR? neibb

29. UPPÁHALDS MATUR? Aspassúpa ala Pabbi, Grillað lamb, TacoSalad ala Lynne.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? Góður endir

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ? Sex and The City, the movie

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI? Knús og kossar

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR? fudge brownie sundae

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL ÞESS AÐ SVARA ÞESSUM LISTA? Ekki hugmynd...

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR TIL ÞESS AÐ SVARA ÞESSU? veit ekki

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? Cleaning up: How I gave up drinking and lived.

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI? engin mús svo engin motta

38. Á HVAÐ HORFÐIR ÞÚ Í SJÓNVARPINU Í GÆR? Leno, CSI

39. ROLLING STONE EÐA BITLARNIR? bara bæði, erfitt að gera uppá milli.

40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI? California!

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR? Ákveðni getur verið eiginleiki.

42. HVAR FÆDDIST ÞÚ? Reykjavík


Góð Helgi að baki

Búin að vera hin besta helgi.

Hryllingsmynda-tónleikar á föstudaginn, Blóma-djamm á Laugardaginn og svo var skellt sér í höllina á landsleik í dag og öskrað frá sér allt vit!

17 júni frammundan, ekkert plan. Spurning hvort maður kíkji eitthvað austur fyrir fjall...


Fjórhjól og fagurleiki!

Seinustu 3 kvöld hef ég verið að geysast um suðurnesinn á fjórum hjólum alveg eins og vitleysingur! Ohh hvað þetta er gaman!

Annars hefur lítið annað gerst hjá mér, bara verið í rólegheitum og afslöppun eins og læknirinn skipar. Fór í segulómun og fékk góðar niðurstöður, engar nýjar skellur eða blettir. Afslöppunin er greinilega að virka.

Skrapp aðeins austur í gær í heimsókn á gamla vinnustaðinn. Mikið er gott að komast í sveitinna svona einstaka sinnum. Allt svo fallegt og friðsælt. Gaman að sjá nemana fyrir austan í góðum gír og bara yndislegt umhverfi að vera í. Ég sakna sko vinnunar þar og það er alltaf voða gott að kíkja austur og fá að vera með í einn og einn dag.

en eins og ég sagði lítið að gerast og því lítið frá að segja...


Nafnið mitt

fæ ég frá ömmu Lillu. Ég er al-nafnan. Brynhildur Jensdóttir, eða Binna litla eins og ég er kölluð innan fjölskyldunnar. Amma hét líka Brynhildur Jensdóttir, en var alltaf kölluð Lilla. 

Nafnið var ekki það eina sem ég fékk frá henni. Ég fékk ákveðnina frá Ömmu í vöggugjöf með nafninu og hún hefur nýst mér alveg hreint ágætlega til þessa. Frekja sögðu sumir, ákveðni sagði amma. 

Amma mín vann í meðferðarmálum hér á landi fyrir áratugum síðan þegar það batterý var að komast á stað, á byrjunardögum SÁÁ. Hún fór erlendis í nám og fór til dæmis á frægar meðferðarstofnanir í USA að læra, stofnanir sem ég dreymi um að einn dag fá að skoða og læra hjá. 

Yfir kaffibollanum og kókglasinu ræddum við oft meðferðarmál og alltaf lærði ég meira um hversu mikið hún hafði verið inní þessum geira, mörgum mörgum árum áður en ég fæddist.  

Í dag kvaddi ég Ömmu Lillu, hún er haldin á vit guðanna og í faðm hinna sem áfram eru farnir. Nafnið mun ég bera með stolti í þeirri von að hún verði stolt af nöfnu sinni og ég ætla líka að halda áfram að berjast í meðferðarmálunum hér heima, halda áfram baráttunni sem hún byrjaði á. 

 

 


lítið að segja

bara búið að vera nóg að gerast í kringum mig.

sumt ánægjulegt, annað erfitt.

tek tíma fljótlega og blogga eitthvað af viti.

hef bara ekki orku í það núna.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband